Skíðaganga. Óvissuferð í Hálsaskóg
DAGS
Kl.
11:30-15
BROTTFÖR Kl.
11:30
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
Valur Magnússon ætlar að bjóða aftur í óvissuferð og núna í Hálsaskóg þar sem er afar skemmtilegt að skíða í góðum snjó eins og er þar núna.
Brottför kl. 11:30 frá FFA, Strandgötu 23.
Sameinast í bíla ef vill.
Ekið veginn áleiðis að Gásum, stoppum við innkeyrsluna í Hálsaskóg. Þræðum stígana í skóginum. Stoppum einhversstaðar fyrir kakó. Þetta er skemmtileg ganga í nýjum snjó eins og við höfum núna.
Fyrirtækið GoHusky er stundum með starfssemi í skóginum og troða fyrir hundasleða. Þeir eru hins vegar bara fyrir hádegi og enginn ætti að trufla annan.
Takið með ykkur kakó á brúsa eða eitthvað heitt og svo eitthvað til að narta í í „kakóstoppinu“.
Lágmarksfjöldi til að ferðin verði farin er fjórir aðilar.
Ferðin er ókeypis en það þarf að skrá sig.
Búnaður
Dagsferðir á gönguskíðum
Nauðsynlegur búnaður í dagsferð á gönguskíðum:
Gönguskíði og skíðaskór. Best er að hafa skíði með stálköntum/utanbrautarskíði
Skíðastafi (athugið að ólin sé þannig að þið komist í þykkum vettlingum í hana)
Gott að hafa meðferðis skinn á skíðin
Skíðagleraugu, sólarvörn og varasalvi
Vind- og vatnsheldan jakka
Vind- og vatnsheldar buxur
Ullarnærföt
Hanska/vindhelda vettlinga
Drykkjarflösku og smá orku til að narta í t.d. orkustykki (alltaf eitthvað heitt að drekka)
Sólarvörn og varasalvi
Gott að hafa höfuðljós í lengri ferðir
Sjúkragögn, hælsærisplástur, verkjalyf og annað smálegt
Sjúkragögn (hælsærisplástur og annað smálegt)
Gott að hafa létta úlpu og þurra vettlinga (gott líka að hafa „pokavettlinga“ til að hafa yfir aðra). Margir hafa líka með sér þurra húfu

